fara á forsíðu
  • Starfsfólk
  • Foreldrar
    • Fréttir
    • Matseðill
    • Deildir
      • Viðburðir
      • Um skólann
        • Námið
          • Sönglög
            • Farsæld barna
            • Starfsfólk
            • Foreldrar
              • Fréttir
              • Matseðill
              • Deildir
                • Viðburðir
                • Um skólann
                  • Námið
                    • Sönglög
                      • Farsæld barna

                       

                       

                              Vér göngum

                              Freysteinn Gunnarsson þýddi

                       

                              Vér göngum svo léttir í lundu,

                              því lífsgleðin blasir oss við.

                              Vér lifum á líðandi stundu

                              við lokkandi söngvanna klið.

                              :,: Tra la la la la la

                              Tra la la la la la

                              Tra la la la la la la la la la :,:

                       

                              Vér göngum syngjum hér saman,

                              því söngurinn hann er vort mál.

                              Og nú verður glaumur og gaman,

                              nú gleðjist hver einasta sál.

                              :,: Tra la la la la la

                              Tra la la la la la

                              Tra la la la la la la la la la :,:

                       

                       

                              Við klöppum öll í einu

                       

                              Við klöppum öll í einu,

                              við klöppum öll í einu,

                              við klöppum öll í einu,

                              það líkar okkur best.

                       

                              Allir syngja lagið og klappa taktinn.  Svo má bæta við erindum t.d. hoppa, stappa o.s.frv.

                       

                       

                              Vorvindar glaðir

                              Sænskt þjóðlag

                              Þýð Helgi Valtýsson

                       

                              Vorvindar glaðir, glettnir og hraðir,

                              geysast um löndin rétt (létt) eins og börn.

                              Lækirnir skoppa, hjala og hoppa,

                              hvíld er þeim nóg í sæ eða tjörn.

                              :,:  Hjartað mitt litla, hlustaðu á,

                              hóar nú smalinn brúninni frá.

                              Fossbúinn kveður, kætir og gleður.

                              Frjálst er í fjallasal :,:

                       

                       

                              Vertu til

                              Rússneskt þjóðlag

                              Tryggvi Þorsteinsson

                       

                              Vertu til er vorið kallar á þig,

                              vertu til að leggja hönd á plóg.

                              Komdu út því að sólskinið vill sjá þig,

                              sveifla haka og rækta nýjan skóg

                              -       hei

                              sveifla haka og rækta nýjan skóg

                              -     hei

                       

                       

                                Við erum góð

                       

                              Við erum góð

                              góð við hvort annað.

                              Stríðum ekki

                              eða meiðum neinn.

                              :,: Þegar við grátum

                              huggar okkur einhver

                              þerrar tár 

                              og klappar okkar kinn :,:

                       

                              Við göngum mót hækkandi sól

                       

                              Við göngum mót hækkandi sól, sól, sól

                              og sjáum hana þíða allt er kól, kól, kól.

                              :,: Svo vætlurnar streyma og vetrinum gleyma,

                              því vorið er komið með sól, sól, sól. :,:

                       

                       

                             Vorljóð



                             Með vindinum þjóta skúraský.

                              drýpur drop, drop,drop,

                              drýpur drop,drop,drop.

                              Og droparnir hníga og detta á ný,

                              drýpur drop,drop,drop.

                              drýpur drop,drop,drop.

                              Nú smáblómin vakna eftir vertarblund,

                              drýpur drop, drop, drop,

                              drýpur drop,drop,drop.

                              Þau augun sín opna er grænkar grund

                              drýpur drop,drop, drop,

                              drýpur drop, drop, drop.

                       

                              Vinir gegnum þykkt og þunnt

                              Við eigum hvor annan að

                              eins og skefti og blað

                              í lífsins skúraveðri;

                              hanski og hönd

                              hafið og strönd.

                              Við eigum samleið ég og þú

                              eins og vind og vindubrú


                              Andlit og nef

                              nefið og kvef

                              við hnerrum hjartanlega.

                              Allt gengur vel

                              ef þú átt vinarþel.


                              Stundum fellur regnið strítt.

                              Stundum andar golan blítt.

                              Öðrum stundum allt er hvítt!

                              En svo verður aftur hlýtt!

                              Sumir kvarta sí og æ!

                              Svoleiðis ég skellihlæ.

                          
                              Allt gengur miklu betur í vetur

                              ef þú getur

                              kæst með mér kömpunum í!


                              Það verður bjart yfir borg

                              og bros um öll torg.


                              Við syngjum sólarsöngva.

                              Snúðu á hæl!

                              Með þessu mælum við!

                          
                             Ekkert jafnast á við það

                              að eiga góðan vin í stað.


                              Að standa tveir í hverri raun

                              eru vináttulaun!


                             Ekkert jafnast á við það

                              að eiga góðan vin í stað!

                              Að standa tveir í hverri raun

                              eru vináttulaun!

                       

                              Vatnsvísan

                       

                              Dripp dropp dripp dropp dripp dropp dripp dropp.

                              Hvað er það sem rignir svo regnhlífarnar á?

                              Hvað rennur svo bólstrunum svörtu frá?

                              Það er vatnið, vatnið, ekkert nema vatnið.

                       

                              Dripp dropp.....

                              Hvað er í þeim skýjum sem skreyta loftin blá

                              en skipin og bátarnir sigla á?

                              Það er vatnið, vatnið, ekkert nema vatnið.

                       

                              Dripp dropp...

                              Hvað er það, sem alls staðar liggur kringum lönd

                              og leikandi gjálfrar við sjávarströnd?

                              Það er vatnið, vatnið, ekkert nema vatnið.

                       

                              Dripp dropp...

                              Hvað er það, sem börnin sig baða stundum í

                              en breytist í ís, þegar frost nær því?

                              Það er vatnið, vatnið, ekkert nema vatnið.

                       

                       

                              Veiðisaga frá Grænlandi

                              Haggi taggi jumba, haggi taggi jumba

                              hey missa dey missa golla missa dey.

                              Heit a komma miss jú akí

                              Heit a komma miss jú akí

                              Heit a komma miss jú akí.

                              Haggi taggi jumba, haggi taggi jumba

                              hey missa dey missa golla missa dey.

                       

                              Vetrarkuldinn

                              Æ, vetrar kuldinn klípur í vangann

                              æ, vetrar kuldinn vondur hann er.

                              Ég hoppa, ég dansa, ég hleyp daginn langan,

                              svo vetrar kuldinn vinn´ekki á mér.

                       

                              Vinarljóð

                              Gulli og perlum að safna sér

                              sumir endalaust reyna.

                              Vita ekki að vináttan er,

                              verðmætust eðalsteina.

                       

                              Gull á ekkert að gefa þér

                              og gimsteina ekki neina,

                              en viltu muna að vináttan er

                              verðmætust eðalsteina.

                       

                                Vinátta

                              Allir þurfa´ að eiga vin

                              allir þurfa´ að eiga vin.

                              Leggjum núna hönd í hönd

                              og hnýtum okkar vinabönd.

                       

                              Þegar bjátar eitthvað á

                              allt það segja vini má,

                              ýta sorgum öllum frá

                              og aftur gelði sinni ná.

                       

                              Allir þurfa´ að eiga vin.

                       

                              Vináttan hún færir frið

                              friður bætir mannkynið.

                              Öðrum sínum ást og trú

                              og eflum vináttuna nú.

                       

                              Allir þurfa´ að eiga vin.

                       

                              Vinka með tánum

                              Vinka með tánum, vinka með tánum

                              og klappa með höndunum.

                              Opna svo munninn, opna svo munninn

                              loka svo augunum.

                       

                              Opna svo augun, opna svo augun,

                              klappa með höndunum.

                              Vinka með tánum, vinka með tánum,

                              loka svo munninum.

                       

                              Völuvísa

                              Eitt verð ég að segja þér áður en é dey,

                              enda skaltu börnum þínum kenna fræðin mín,

                              sögðu mér það álfarnir í Suðurey,

                              sögðu mér það dvergarnir í Norðurey,

                              sögðu mér það Gullinmura og Gleymmérei

                              og gleymdu því ei:

                              að hefnist þeim er svíkur sína huldumey,

                              honum verður erfiður dauðin

                       

                       

                      • A
                      • Á
                      • B
                      • D
                      • E
                      • É
                      • F
                      • G
                      • H
                      • I
                      • Í
                      • J
                      • K
                      • L
                      • M
                      • N
                      • O
                      • Ó
                      • P
                      • R
                      • S
                      • T
                      • U
                      • Ú
                      • V
                      • Y
                      • Þ
                      • Æ
                      • Ö
                       
                      © 2019 Leikskólinn Austurkór
                      Austurkór 1, sjá kort
                      Sími 4415100
                      austurkor@kopavogur.is