Út um mela og móa
Út um mela og móa
syngur mjúkrödduð lóa,
og frá sporléttum spóa
heyrist sprellfjörugt lag.
Viðlag:
A-a-a hollerahahía,
Hollera,ha,ha,hú,hú,
Hollerahahía, hollera,ha,ha,
Hollerahahía hó.
Út um strendur og stalla,
hlakkar stór veiðibjalla.
Heyrið ómana alla
yfir flóa og fjörð.
Út um græna grundu
Út um græna grundu
gakktu, hjörðin mín.
Yndi vorsins undu.
Ég skal gæta þín.
Sól og vor ég syng um
snerti gleðistreng.
Leikið, lömb, í kringum
lítinn smaladreng.
Úlfgang bóndi
Hann fór í veiðiferð í gær,
hann Úlfang bóndi.
Hann skildi húsið eftir autt
og okkur hér.
Við erum glöð á góðri stund
og syngjum saman
stemmuna sem hann
Helmút kenndi mér:
Köttur – Klukka – Hreindýr - Svín og
Endur - fyrir löngu.
Hófu saman búskap hér og sjá....
Jurijuri jei hí, hí, jurijuri jei hí, hí
Mjá, mjá, mjá, mjá ahaha.