Óli í skógi
Litli Óli í skógi
milli trjánna hann reikar,
en þá allt í einu sér hann
alveg gríðarstóran skógarbjörn!
(Í næstu vísum sér Óli: hund, mjólkurkú, sæta mjaltakonu og sterkan mann).
Ólafía hvar er Vigga
Ólafía, hvar er Vigga,
Ólafía, hvar er Vigga?
Hún fór upp í sveit
að elta gamla geit.
Ólafía, hvar er Vigga?
Ólafía, hvar er Vigga,
Ólafía, hvar er Vigga?
Hún fór út í lönd
að kaupa axlabönd.
Ólafía, hvar er Vigga?
Ólafía, hvar er Vigga,
Ólafía, hvar er Vigga?
Hún fór oní bæ
að kaupa blómafræ.
Ólafía, hvar er Vigga?
Óskasteinar
Lag: Bardos Lajos
Ljóð Hildigunnur Halldórsdóttir
Fann ég á fjalli fallega steina
faldi þá alla, vildi þeim leyna,
huldi þar í hellisskúta heilla steina,
alla mína unaðslegu óska steina.
Langt er nú síðan leit ég þá steina
lengur ei man ég óskina neina
er þeir skyldu uppfylla um ævidaga
ekki frá því skýrir þessi litla saga.
Gersemar mínar græt ég ei lengur,
geti þær fundið telpa eða drengur
silfurskæra kristalla með grænu og gráu
gullna roðasteina rennda fjólubláu.
Óli og Berta
Óli fór til Bertu, bakaríistertu,
og bað hana að kyssa sig.
Þá sagði Berta, bakaríisterta:
“Bara ef þú elskar mig!”
Þá sagði Óli, sem var á hjóli,
“Berta, ég elska þig!”
Glöð sagði Berta, bakaríisterta,
“Nú máttu kyssa mig!”
(“kyss - kyss” (kysst út í loftið))
Ó mamma
Ó, mamma gef mér rós í hárið á mér
því tveir litlir strákar eru skotnir í mér.
Annar er blindur og hinn ekkert sér,
ó, mamma gef mér rós í hárið á mér.
Þegiðu stelpa, þú færð enga rós,
farðu heldur með henni Gunnu út í fjós,
þar eru kálfar og þar eru kýr,
þar eru fötur til að mjólka í.