Góð foreldrasamvinna og gagnkvæmur trúnaður er forsenda þess að leikskóladvölin verði barninu ánægjuleg og árangursrík.  

Megin  þáttur í þessari samvinnu er aðlögunin, þar sem grunnurinn er lagður að góðu samstarfi foreldra og starfsmanna leikskólans. Mikilvægt er að hafa í huga hversu miklar breytingar eiga sér stað hjá barninu sem þarf að aðlagast nýju umhverfi, starfsfólki og börnum. Það að tilheyra hópnum og fara eftir nýjum reglum getur verið erfitt í byrjun skólagöngunnar.
  

Það er einstaklingsbundið hve langan tíma aðlögunin tekur en miðað er við fimm daga. Í Austurkór er notast við þátttökuaðlögun og er skipulagning aðlögunarinnar í höndum deildarstjóra.  Aðlögunin byggir á virkri þátttöku foreldra í leikskólastarfinu þá daga sem hún stendur yfir. Aðlögunina getur þurft að endurtaka hafi barnið verið fjarverandi um lengri tíma. Ef barn vill ekki koma í leikskólann er nauðsynlegt að láta okkur vita svo hægt sé að finna orsökina og vinna að lausn vandans. 

Hér má nálgast aðlögunaráætlun Austurkórs