Góð foreldrasamvinna og gagnkvæmur trúnaður er forsenda þess að leikskóladvölin verði barninu ánægjuleg og árangursrík.
Megin þáttur í þessari samvinnu er aðlögunin, þar sem grunnurinn er lagður að góðu samstarfi foreldra og starfsmanna leikskólans. Mikilvægt er að hafa í huga hversu miklar breytingar eiga sér stað hjá barninu sem þarf að aðlagast nýju umhverfi, starfsfólki og börnum. Það að tilheyra hópnum og fara eftir nýjum reglum getur verið erfitt í byrjun skólagöngunnar.
Það er einstaklingsbundið hve langan tíma aðlögunin tekur en venjulega er miðað við 5 daga. Skipulagning aðlögunarinnar er í höndum deildarstjóra. Foreldrar eru með barninu fyrstu dagana en eftir því sem barnið öðlast meira öryggi, draga foreldrarnir sig í hlé. Aðlögunina getur þurft að endurtaka hafi barnið verið fjarverandi um lengri tíma. Ef barn vill ekki koma í leikskólann er nauðsynlegt að láta okkur vita svo hægt sé að finna orsökina og vinna að lausn vandans.
Hér má nálgast aðlögunaráætlun Austurkórs