2023060120230601 |
Útskriftasamtöl í þessum mánuði |
Útskriftasamtöl verða í þessum mánuði. |
2023060420230604 |
Sjómannadagurinn |
Sjómannadagurinn er fyrsti sunnudagurinn í júní ár hvert, nema ef hvítasunnu ber upp á þann dag, þá er hann næsti sunnudagur þar á eftir. Hann er hátíðisdagur allra sjómanna. Dagurinn var fyrst haldinn hátíðlegur þann 6. júní árið 1938. |
2023061720230617 |
Lýðveldisdagurinn |
Þjóðhátíðardagur Íslendinga, haldinn til að minnast stofnunar lýðveldis á Íslandi þann dag árið 1944. Dagurinn er jafnframt afmælisdagur Jóns Sigurðssonar forseta. |
2023061920230619 |
Hjóladagur í þessari viku ef veður leyfir |
Hjóladagurinn hefur í gegnum árin vakið mikla kátínu meðal barnanna. Þar er stoppað á bensínstöðinni og fyllt á, komið við í sjoppunni og bílaþvottastöðinni meðan verið er að æfa sig í umferðarreglunum. |
2023062320230623 |
Sumarhátíð |
Sumarhátíð í samvinnu við foreldrafélagið þar sem degi ljóssins er fagnað. |
2023062920230629 |
Alþjóðlegi drullumallsdagurinn |
Alþjóðlegi drullumallsdagurinn var fyrst haldinn árið 2009. Markmiðið með honum er að efla samfélagsvitund og þakklæti fyrir umhverfinu í kringum okkur og efla tengingu milli allra barna á jörðinni. Hvað er betra en að gera það í gegnum jörðina sjálfa og nýta moldina. |
Ekkert fannst m.v. dagsetningu |