Gleðilega páska
Kæru foreldrar og forráðamenn,
Síðustu dagar hafa verið afar líflegir og skapandi hjá okkur í leikskólanum Austurkór. Á öllum deildum skólans hafa börnin verið að brallað margt skemmtilegt og unnið fjölbreytt listaverk í tengslum við ýmis þemu. Má þar nefna krumma, tannhirðu, risaeðlur og auðvitað mikið unnið með páskana. Þá var einnig ein deild sem tók sér til sáði fyrir gulrótum og hafa börnin þar fylgst af mikilli eftirvæntingu með fyrstu merkjum um grósku.
Mikil gleði, hugmyndaauðgi og sköpun hefur einkennt dagana og ljóst að börnin njóta þess að kanna, prófa og læra í gegnum leik og listsköpun.
Við viljum óska ykkur foreldrum og börnum gleðilegra páska og vonum að þið njótið vel frísins sem framundan er. Við hlökkum til að hitta ykkur aftur þann 7. apríl þegar skólinn opnar eftir páskafrí.
Kær kveðja starfsfólk Austurkórs