Sumarhátíð Austurkórs

Foreldrafélag skólans stóð fyrir vel heppnaðri sumarhátíð mánudaginn 10. júní. Foreldrar, starfsfólk og börn áttu saman góða stund í garðinum en boðið var upp á pylsur, djús og ís. Börnin fengu einnig útrás í hoppukastalanum sem var settur upp í tilefni dagsins og svo kom töframaður og var með sýningu fyrir börn og fullorðna.