Gleðilegt nýtt ár!

Um leið og við þökkum fyrir gamla árið, margar gleðistundir, ótal þroskastökk og dásemdar vináttu. Þá óskum við ykkur farsæls, hamingjuríks árs.
Við hlökkum til allra ævintýranna sem bíða okkar í leik og starfi og áframhaldandi vináttu og vaxtar.
Við hefjum árið á skipulagsdegi 04.01.21 en þá er leikskólinn lokaður. Þar leggjum við línurnar fyrir komandi lýðræðislotu, förum yfir ýmsar áætlanir og þær endurmetnar og uppfærðar.
Við hlökkum svo til að sjá ykkur klár í slaginn 05.01.21