Ætli það hafi verið laufabrauð sem börnin bitu í ?

Það á að gefa börnum
brauð að bíta í á jólunum.
Kertaljós og klæðin rauð
svo komist þau úr bólunum.
Væna flís af feitum sauð
sem fjalla gekk af hólunum.
Nú er hún gamla Grýla dauð
gafst hún upp á rólunum.