Dagur Myrkurs á föstudaginn 20.12.2019

Að venju sleppum við hafragrautnum í morgunmatnum og gæðum okkur á heitu kakói og smákökum í boði foreldrafélagins. Stundin hefst klukkan 08.20 á útisvæðinu og vonum við að Kári vindur láti okkur alveg í friði til ca. 09.30. Munið að vera klædd eftir veðri og vonandi sjá sem flestir sér fært um að eiga þessa góðu samverustund með okkur - Hlökkum til að sjá ykkur. Einnig væri gaman að koma með vasaljós eða annan ljósgjafa í endurskinsmerkjaleitina.