Áfram skert aðgengi inn í skólann

Við vitum að þetta hefur ákveðið flækjustig í för með sér einkum varðandi fatnað barnanna en biðjum ykkur að vera áfram í samvinnu með okkur. Fataklefarnir verða áfram lokaðir - en hægt verður að taka úlpurnar með heim.

Við viljum þakka kærlega fyrir góðan foreldrafund sem haldinn var í Magnúsarlundi fyrr vikunni.  Yndislegur staður sem við munum án efa nýta áfram til fundarhalda - og nú ættu fleiri að rata.... 
Gaman að geta sagt frá því að stjórn foreldrafélagsins er nú skipuð nýjum stjórnarkonum og verður spennandi að vinna saman að einhverju skemmtilegu fyrir börnin "okkar" í framtíðinni.