Upp er runninn útskriftardagur

Að venju taka börnin virkan þátt í undirbúningi og framkvæmd stundarinnar sem að þessu sinni verður í Salnum (Salurinn Kópavogi). Pabbaknúskórinn syngur lög sem æfð hafa verið markvisst fyrir viðburðinn og ostapinnarnir eru tilbúnir fyrir gesti að gæða sér á.

Uppfært: Nú er búið að útskrifa hópinn með pomp og prakti og var þetta hátíðleg og gleðileg samverustund. Takk kærlega fyrir komuna og samveruna :)