Alls konar á Öskudaginn

Það er nefnilega alls ekki það sama sem hentar öllum og er lang best að fá að vera eins og fólki finnst þægilegast/öruggast/skemmtilegast. Ef búningar verða fyrir valinu þá eru fylgihlutir velkomnir með í skólann þennan dag því það er hálfmáttlaust að vera kórónulaus kóngur, sverðlaus sjóræningi eða vængjalaus garðálfur. Við munum halda okkar árlega pylsupartý með pylsu-sjoppu á bláa gangi. Kötturinn verður síðan sleginn úr kassanum á sitt hvorum ganginum eftir nónhressingu og svo verður talið í ganga-gleði-dans ....sem sagt líf og fjör á Öskudaginn :)