Bolla - bolla - bolla

Rita og Jara voru ekki lengi að baka fyrir okkur á þriðja hundrað vatnsdeigsbollur sem boðið verður upp á í nónhressingunni. En í hádegismatnum voru það fiskibollur sem runnu ljúflega niður í svanga maga. Vaktin hjá matardísunum í Austurkór er bara rétt að byrja því á morgun verður baunasúpan og salkjötið á boðstólum og á Öskudaginn er okkar árlega pylsupartý (með tilheyrandi pylsusjoppu)